Ríkey Ofurbloggari!

Lífið í Danmörku

21 september 2005

Loksins! búin með miniprojekt.

Loksins loksins loksins er ég búin að skila af mér þessu verkefni. Núna get ég hlakkað til prófsins.
Við erum ss. komin heim til Danmerkur aftur eins og ég geri ráð fyrir að flestir hafi getið sér til og við erum flutt og við erum búin að skila af okkur íbúðinni á Helgolandsgade. Það er hins vegar allt í rusli enn á 007 en vonandi kemst það í lag um helgina. Við eigum von á sófasetti á föstudaginn og sjónvarpsborði undir nýja stóra sjónvarpið okkar í vikunni þannig að þetta er allt að smella saman.
Allt í einu er svo gaman að vera til því núna get ég einbeitt mér af því að laga til í kring um mig. Ekkert miniprojekt að flækjast fyrir lengur.
Ég ætlaði bara að láta vita af mér. Þýðir ekkert að skrifa aldrei á þessa síðu mína. Ég er nú einu sinni Ríkey ofurbloggari.
Ég skrifa meira um helgina, ég lofa!

Ríkey

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim