Ríkey Ofurbloggari!

Lífið í Danmörku

30 nóvember 2005

Detti mér allar dauðar lýs úr höfði!!!

Hver leggst svona lágt?

28 nóvember 2005

Í kjólinn fyrir jólin

Létt kjöt og grænmeti gott fyrir línurnar
Nú þegar jólavertíðin er ekki langt undan er ekki úr vegi að huga að hollustunni og jafnvel þyngdinni. Nóvemberhefti franska heilsublaðsins "Santé Magazine" lumar á nokkrum heilræðum sem ættu að hjálpa til við að halda þyngdinni á réttu róli, alla vega fram að jólum.

* Borðið létt kjöt eins og kjúkling eða fiðurfé sem er laust við mikla fitu.

* Notið pönnu og potta sem hráefnið límist ekki við því þá þarf að nota minna af steikingarolíu.

* Varist að krydda matinn of mikið (þetta á sérstaklega við salt) en notið krydd eins og cumin og engifer sem hjálpa til við meltinguna.

* Mælt er með því að borða linsubaunir að minnsta kosti einu sinni í mánuði því þær innihalda trefjar og magnesíum og eru sérlega orkuríkar en lausar við fitu.

* Kál, sætar kartöflur og rófur eru seðjandi en einnig ríkir fólínsýrugjafar og innihalda a-vítamín sem er gott fyrir sjónina og einbeitingu.

* Konur ættu að borða fitulítið lambakjöt reglulega því það er einstaklega járnríkt.

* Soðnir tómatar eru betri en hráir því líkaminn nýtir betur næringarefnin sem í þeim finnast.

Hér á eftir er létt og bragðgóð uppskrift, því það er ekkert sem segir að ekki sé hægt að njóta matmálstímans þó að passað sé upp á kaloríurnar.

Fiskur frá Senegal

Fyrir 6


750 g hvítur fiskur (ýsa eða þorskur)

50 g harðfiskur

1 msk olía

4 msk tómatpúrra

3 rauðar paprikur

1 græn paprika

2 gulrætur

2 rófur

1 eggaldin

½ kálhaus

200 g sætar kartöflur

3 laukar

½ tsk chili-pipar

salt og pipar

Fyrir sósuna:

fersk steinselja,

1 ferskur chilipipar,

1 laukur


Skrælið grænmetið og laukinn. Skerið kartöflurnar, kálið og paprikurnar í fernt og fræhreinsið paprikurnar. Skerið til helminga gulræturnar og rófurnar. Skerið eggaldin í sneiðar. Léttsteikið fiskinn í heitri olíunni í góðum steikingarpotti. Geymið hann svo til hliðar. Brúnið laukinn og bætið svo tómatpúrrunni við ásamt ½ l af vatni og ferska chilipiparnum þangað til suða kemur upp. Bætið við grænmetinu og harðfiskinum í bitum. Fyllið af vatni, saltið (mjög lítið vegna harðfisksins), piprið og látið malla í 40 mínútur. Bætið svo hvíta fiskinum við og látið krauma í 10-15 mínútur. Notið soðið til að búa til sósu. Saxið laukinn og steinseljuna og bætið chili út í. Í þessum rétti eru um 245 kílókaloríur (kcal) á mann.

Verði ykkur að góðu!

13 nóvember 2005

Ég er skáldajötunn.... hvað ert þú?


Skáldajötunn

Þú ert nýjungagjarn, tilfinningaríkur innipúki.
Skáldajötunninn er svo opinn fyrir nýjungum á sviði lista og menningar að honum tekst að sjá list út úr óbreyttri skranhrúgu eða einmana slettu á striga. Skáldajötunninn tekur til í herberginu sínu og kallar það listrænan gjörning. Hann er mjög líklega með óskrifaða skáldsögu í hausnum eða óútgefna bók í skrifborðsskúffunni, þ.e. ef hann hefur ekki þegar fengið bók sína útgefna.

Skáldajötunninn lifir fyrir listina og myndi frekar kaupa blek fyrir fjaðurstafinn sinn heldur en brauðhleif þótt hann hefði farið án matar svo dögum skipti. Hann unir sér vel einn með eigin hyldjúpu hugsunum.

Hvaða tröll ert þú?