Ríkey Ofurbloggari!

Lífið í Danmörku

21 febrúar 2005

Auglýsingar

Þá er ég loksins búin með Bionics verkefnið. Skilaði módeli og allt. Nú er bara að vona að ég nái þessu. Ég efast reyndar um að það sé nokkur sem falli. Þetta er einhvernvegin ekki þannig verkefni.
En auglýsingar já... ég verð eiginlega að segja ykkur frá auglýsingu sem mér finnst mjög fyndin. Það er verið að auglýsa smiði eða verktaka eða eitthvað álíka (veit ekki hvað það heitir eiginlega). Ég veit ekki.... kannski verður maður að sjá hana en allavega, here it comes:

Maður er að setja upp eldhúsinnréttingu og sú sem að býr í húsinu kemur og spyr hvað þetta sé eiginlega.... af hverju hún sé svona skökk. Hann þykist ekkert skylja en svo tekur hún flösku og leggur á borðið og hún rúllar niður eldhúsbekkinn og endar í vaskinum. "já þetta" segir hann, "þetta er af því að húsið er skakkt"! "Er húsið skakkt" segir hún, "já, já..... þetta átti nú líka að vera úr mahony". Maðurinn hikar svolítið vandræðalegur en segir svo "þetta verður mahony með tímanum".

ok ok... mér finnst þetta allavega fyndið.

Mamma, pabbi og Iðunn Kara eru í Austurríki í augnablikinu í skíðaferðalagi. Þau fóru í fyrradag og verða í viku held ég. Ég væri alveg til í að vera með þeim. Það eru ár og aldir síðan ég hef farið á skíði. Ef ég fer ekki að fara bráðum þá þarf ég að byrja í barnabrekkunni aftur. Það eru 50 lyftur og 130 km brautir og 3000 m hæð. Svolítið annað en Oddskarð.

Ég er farin heim eða eitthvað.... hef ekkert að gera fyrr en kl. eitt. Þá fáum við að heyra kennarana rakka verkefnin niður..... eða eitthvað.

Bæjó, Ríkey

16 febrúar 2005

....stendur undir nafni!

Jæja gott fólk. Ætli maður verði nú ekki að skrifa eitthvað á þessa síðu. Ég hef tekið eftir að þið eruð mjög dugleg að kíkja á hana allavega og maður verður nú að verðlauna það, eða finnst ykkur það ekki?
Annars er ekki mikið að frétta. Ég er á fullu að gera miniverkefni. Ég byrjaði að vinna út frá nöglum og núna er ég að hugsa um að búa til nýja gerð af umbúðum utan um ost. Hvernig kemst maður frá nöglum yfir í ost spyrjið þið þá kannski... ja... það þýðir nú eiginlega lítið að spyrja mig, en það er örugglega tenging þarna einhvernstaðar. Ég þarf nú samt að ræða aðeins við kennarana áður en ég slæ þessu fast. Mér finnst þetta allavega vera besta hugmyndin sem ég hef fengið hingað til. Ég veit bara ekki úr hverju þetta á að vera. Uppástungur eru vel þegnar. Það þarf allavega að vera eitthvað sem getur verið þræðir sem haldast vel saman en er auðvelt að rífa í sundur samt sem áður. Og svo líka eitthvað utan á það til að verja það lag, svona í einhvernskonar flögum eða eitthvað.... ef þið skiljið hvað ég á við.... nei... sennilega ekki. En það mátti reyna.
Annars er lítið annað að frétta svo sem. Við erum að fara á þorrablót á laugardaginn 26. Það verður vonandi mjög gaman. Davíð Þór kemur að skemmta og hin frábæra hljómsveit Spútnik, sem ég hef ekki hugmynd um hverjir eru. Svo verður líka happadrætti um flug fyrir 2 til Íslands. Ég ætla að vinna það.
Jú, stórfrétt.... Anna Dröfn bloggaði! Loksins kom eitthvað frá þér Anna mín. Ég var nú bara farin að sakna þín svolítið.
Það er allt út í snjó hérna í Dk, í fyrsta skiptið í allan vetur. Og það er meira en bara smá hula. Það eru smá skaflar og klaki og bara læti sko. Það var nefnilega "snjóstormur" um daginn. Það er eitthvað sem að við Íslendingar myndum kalla snjókomu og smá blástur, en hei.... Danir eru dramatískir þegar að það kemur að veðri, það verður nú bara að segjast.
Jæja, nú er ég alveg orðin tóm. Ég bið bara að heilsa ykkur í bili.
Vetrarkveðja, Ríkey.